Opnir tímar í boði hjá okkur

Infrared Barre
Barre eru tímar í heitum sal með infrared hitaplötum sem gefa jafnan og góðan hita í salinn. Tímarnir eru gerðir við stöng og út á gólfi. Það er mest verið að vinna með okkar eigin líkamsþyngd, stundum er notað teygjur, bolta og létt lóð. Barre styrkir alla kjarnavöðva og allir geta aðlagað æfingarnar eftir sínu getustigi.

Infrared Pilates Fusion
Pilates Fusion tímar eru keyrslu tímar með samblöndu af pilates core og styrktaræfingum þar sem hver og ein getur unnið á sínum styrk. Byrjað er á góðri upphitun í flæði, tekið svo core og blanda af efri og neðri líkama og endað á teyjum með áherslu á slökun.

Infrared Hot Fit
Alhliða styrktar og þolþjálfun í heitum sal með infrared hita. Fjöbreyttar æfingar með lóðum, ketilbjöllum, teygjum og líkamsþyngd. Æfingar aðlagaðar eftir getustigi iðkanda svo allir geta fundið sitt tempó. Svitnum saman við geggjaða tónlist og stemningu!

Infrared Pilates
Pilates er æfingakerfi þar sem unnið er út frá því að styrkja allan líkamann en með sérstaka áherslu á djúpu kjarnavöðvana (kviður, bak og mjaðmir). Æfingarnar byggjast á stjórnun, samhæfingu og öndun.
Tímarnir henta konum á öllum aldri og geta þeir hjálpað við að bæta líkamsstöðu og koma í veg fyrir meiðsli.

Infrared Upper Body
Styrktaræfingar sem einblýna á efri part líkamans í heitum sal með infrared hita. Fjöbreyttar æfingar með lóðum, ketilbjöllum, teygjum og líkamsþyngd.

Infrared Lower Body
Styrktaræfingar sem einblýna á neðri part líkamans í heitum sal með infrared hita. Fjöbreyttar æfingar með lóðum, ketilbjöllum, teygjum og líkamsþyngd.